Mikið fjölmenni var saman komið við Gemlufallsheiði nú um hádegisbilið í dag, þegar fram fór hjólreiðakeppnin Fjallkóngur og fjalldrottning 2011. Að sögn staðgengils aðstoðarmanns varasviðsstjóra fjallvegadeildar Manntalsstofnunar Íslands er áætlað að alls hafi mætt um níu manns á svæðið, þ.e.a.s. tveir ljósmyndarar, tveir tímaverðir og fimm keppendur. Uppfærsla á frétt: Gervitunglamyndir sýna, svo ekki verður um villst, að annar ljósmyndarinn var með stílista með sér. Fjöldi viðstaddra var því 10.
Keppnin fólst í því að hjóla upp Gemlufallsheiðina, Önundarfjarðarmegin, og var markið á hæsta punkti heiðarinnar. Upphaflega átti vegalengdin að vera fjórir kílómetrar, en hún var stytt niður í 3,3 km þar sem mótsstjóranum og mannvininum Martin þótti of lítið klifur fyrstu 700 metrana og óvíst að fólk myndi þjást þar að nokkru ráði. Var því rásmarkið fært yfir á brattari stað. Það var samt ekki bara brekkan sem keppendur þurftu að takast á víð, því veðurguðirnir ákváðu að taka virkan þátt í mótinu með hressilegum mótvindi.
Ræst var með einstaklingsstarti og var ein mínúta á milli manna. Bobbi tók tengingu mótsins við göngur og réttir full bókstaflega, því hann breyttist hreinlega í slátrara og vann með yfirburðum. Nadía var eina konan í mótinu, en hún náði næst besta tíma allra þátttakenda.
Ljóst er að aftur verður keppt um titla Fjallkóngs og fjalldrottningar á næsta ári. Þó kann að vera að einhverjar breytingar verði gerðar á fyrirkomulaginu. Þannig voru t.d. uppi háværar raddir um að keppendum verði skipt í þyngdarflokka, enda er fátt mikilvægara á haustin en fallþungi dilka.
Úrslitin urðu þessi:
| Konur |
|
| Nadia Ashkenazy-Jones |
18:31 |
| Karlar |
|
| Kristbjörn R. Sigurjónsson |
16:17 |
| Heimir G. Hansson |
19:04 |
| Martin Ashkenazy-Jones |
19:24 |
| Jónann D. Svansson |
20:10 |